Setjum lög um heimilisofbeldi
Quoted post
Guest |
#22015-06-11 18:57Ólst upp við mikla skapbresti og drykkju föður og horfði oft á hann ganga í skrokk á móður minni. Þegar hún dó hafði hún í þó nokkurn tíma verið í hjólastól vegna þess að faðir minn hafði hrint henni niður stiga og brotið greri mjög illa. Og að auki vann ég í nokkur ár á skrifstofu Kvennathvarfs og kynntist mörgum konunum. |
Replies
Guest |
#36 Re:2015-10-30 00:54:31Móðir mín átti í stormasömu hjónabandi sem kostuðu nokkrar ferðir fyrir hana á sjúkrahús en faðir minn var iðulega sendur á Klepp. Eftir að faðir minn fyrirfór sér 1978 og við komumst öll á rétt ról þá tók móðir mín þátt í uppbyggingu kvennaathvarfsins ásamt öðrum fleiri baráttukonum. Ég hef því alltaf borið hlýjar kveðjur til þeirra. |