Leik- og grunnskóla mál í Reykjavíkurborg - Við krefjumst aðgerða


Guest

#1

2016-08-30 13:44

Leikskóla og skólamálin þurfa og eiga að vera í forgangi. Þetta eru bornin okkar og barnabörn.

Guest

#2

2016-08-30 14:55

Í nýlegri skýrslu SSH "Skólar og menntun í fremstu röð" kemur fram að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafi sammælast um að gera menntamál að sameiginlegu forgangsverkefni sínu til ársins 2020. Ráðstöfun fjármagns, stefnumörkun og aðgerðir eigi að taka mið af því. Gríðarleg vonbrigði að borgarfulltrúum í RVK hafi ekki tekist að forgangraða betur og hlífa skólunum við enn frekari niðurskurði eftir mikinn niðurskurð allt frá hruni. 


Guest

#3

2016-08-30 15:16

Þann 25. maí voru Reykvíkingar spurðir á FB síðu Reykjavíkurborgar hvað þeir vildu gera við ALLA þessa framkvæmdapeninga 450 milljónir-50% meira en í fyrra, verið að auglýsa Betri Reykjavík.  Á sama tíma blasti við 700 mill.króna niðurskurður á Skóla- og frístundasviði. Spurning um forgangsröðun. 

 


Guest

#4

2016-08-30 18:03

Vegna þess að þetta skiptir grìðarlega miklu màli. Èg à eitt barn en à vonandi eftir að eignast fleiri og börnin okkar eru framtíðin.

Guest

#5

2016-08-30 20:14

Just DO IT!!!

Guest

#6

2016-08-30 21:49

Vegna slæms ástands

Guest

#7

2016-08-30 22:14

Á barnabarn sem var að byrja í leikskóla, vil að hann fái að tækifæri til að upplifa góðan leikskóla sem ekki er í fjársvelti enda er leikskólinn fyrsta skólastigið og þar á að vera fagleg aðkoma.


Guest

#8

2016-08-30 22:31

Verðum að hugsa betur um börnin. Borga fólki sem vinnur með börnum betri laun og eyða meiri pening í skólamál.

Guest

#9

2016-08-31 00:39

Þetta er bara ekki í lagi, börn og starfsfólk eiga betra skilið!

Guest

#10

2016-08-31 04:34

Ég tel fulla þörf á að taka til einhverra ráða til að sporna við því ófremdarástandi sem viðgengst hjá stjórn Reykjavíkurborgar. Skólar og leikskólar eru fjársveltir og komnir að þolmörkum vegna óráðsíu og heimskulegra gæluverkefna.

Guest

#11

2016-08-31 09:08

Af þvi að leikskóla- og skólamál í borginni eru til skammar. Peningum er eytt í allskonar vitleysu eins og að gera hjólastíga á stöðum sem eru algjörlega óþarfir fyrir nokkrar hræður.

Vil að menn vakni aðeins og fari að forgangsraða peningunum rétt, hugsa hvar sé best að bæta okkar samfélag og hvað megi bíða. Það að geyma alltaf skólana og spítalann en eyða í margt annað, sem ég tel bruðl og rugl, er bara ekki hægt lengur.

Það er nóg til í ríkiskassanum og ekki alltaf hægt að kenna kreppunni um allt. Skattar hér á landi eru í hærri kantinum og manni líður eins og maður fái ekkert fyrir þá.

Guest

#12

2016-08-31 17:15

Óréttlætið er orðið svo mikið í málum leik- og grunnskóla í Rvk.

Guest

#13

2016-08-31 18:02

Sumt skiptir meira máli en annað, þetta þurfa þeir sem stjórna borginni að fatta.

Guest

#14

2016-09-01 00:48

Laikskólamál eru mál sem verða ávallt að vera í lagi !

Guest

#15

2016-09-01 16:53

Because i support it

Guest

#16

2016-09-02 08:27

Þetta er ekki flókið viljum við hafa Leikskóla eða gæslu ?. Viljum við Leikskólakennara eða gæslufólk? Ef þessi þróun verður ekki stöðvuð þar að segja sameiningar þar sem leikskólastarfi er rústað til að spara og sparað meira þá leggst niður leikskólastarf einsog hefur verið kappkostað að byggja upp á leikskólum undanfarin ár. Gæði minka. OG LEIKSKÓLAKENNARAR VERÐA EKKI LENGUR Í SKÓLUM . Við getum fengið betur launaða vinnu annarsstaðar og þvímiður er álagið og sparnaðurinn búinn að hrekja frá okkur of margt frábært fagfólk. En þessu má breyta við látum ekki fara svona lengur með þessa duglegu stétt. ÁFRAM LEIKSKÓLAKENNARAR. Nína Midjord Erlendsdóttir Leikskólakennari.


Guest

#17

2016-09-02 10:50

Börnin í 1. sæti.

Guest

#18

2016-09-12 14:25

Ég vona innilega að matur leikskóla reykjavíkurborgar fari batnandi hér eftir !

Guest

#19

2016-09-12 19:58

Ég er mamma leikskólabarns og kokkur á leikskóla og mér finnst ekki hægt að bjóða börnunum upp á þetta!

Guest

#20

2016-09-13 22:33

Þetta gengur ekki lengur

Guest

#21

2016-09-14 14:32

Þetta er algerlega ólíðandi. Það er eitthvað mikið að hjá þeim sem forgangsraða fjármunum Reykjavíkur. Þetta fólk á að skammast sín


Guest

#22

2016-09-14 20:10

 Við þurfum að gera eitthvað mikið í sambandi við skólakerfið, skólarnir verða að hafa nógan mat handa börnunum svo þau verði ekki svöng, þreytt og hafa ekki orku í að læra. Ég á son á 1 ári í leikskóla og ég vil að það verði hugsað vel um hann og að hann fái góða þjónustu og góða menntun í framtíðinni. Börnin okkar eru í forgangi, svo það verður að gera eitthvað núna strax, helst í dag.