Til studnings atvinnulausum
Þessari síðu er ætlað að safna stuðningi til að þrýsta á stjórnvöld að taka á þeim fátæktar vanda sem komin er upp í Íslensku þjóðfélagi. Í stjórnarskrá Íslands stendur þetta "76.gr.[Öllum, sem þess þurfa, skal tryggður í lögum réttur til aðstoðar vegna sjúkleika, örorku, elli, atvinnuleysis, örbirgðar og sambærilegra atvika]"
þessi undirskriftasöfnun gæti líka heitið Til stuðnings lágtekjuhópum því það eru ansi margir sem eiga að draga lífið fram á tekjum sem duga ekki til framfærslu í dag.
það er ljóst að sú aðstoð sem er fyrir í landinu er ekki í takt við það sem þarf til að geta framfleytt sér sómasamlega og haldið reisn og virðingu. það er himin og haf á milli þeirra upphæðar sem starfshópur velferðarráðuneytisins finnur út og þeirrar upphæðar sem til dæmis atvinnulausir eiga að lifa af, og sú upphæð á að því virðist, að duga í lengri tíma, því langtíma atvinnulausum er alltaf að fjölga.
Við skorum á stjórnvöld að gangast við atvinnuleysisvandanum og gera lífskjör þessa fólks betri með að hækka framfærsluna, það er skylda íslenskra stjórnvalda að sjá þegnum sínum fyrir framfærslu ef þeir missa vinnu eða veikjast. Þetta er ein af grunn hornsteinum sem samfélagið byggir á.
Linkur á reiknivél velferðarráðuneytisins https://www.velferdarraduneyti.is/neysluvidmid/
Síðu hefur verið komið upp á facebook og er slóðin http://www.facebook.com/pages/Til-Stu%C3%B0nings-atvinnulausum/204472166243747?sk=wall
Frétt af vísi.is 21 mars 2011 Mesta atvinnuleysið á Íslandi af öllum Norðurlöndunum - http://www.visir.is/article/2011110329796
http://marinogn.blog.is/blog/marinogn/entry/1140538/
Frétt af Dv.is http://www.dv.is/frettir/2011/4/20/taeplega-thusund-manns-leitudu-ser-mataradstodar-i-reykjavik-i-dag/
Opið bréf til velferðarráðherra http://www.facebook.com/notes/berglind-nanna/opi%C3%B0-br%C3%A9f-til-velfer%C3%B0arr%C3%A1%C3%B0herra/10150164900556666
Announcement from the administrator of this websiteWe have closed this petition and we have removed signatories' personal information.European Union's General Data Protection Regulation (GDPR) requires a legitimate reason for storing personal information and that the information be stored for the shortest time possible. |