Við mótmælum sýningu Mike Tyson á Íslandi

Contact the author of the petition

This discussion topic has been automatically created of petition Við mótmælum sýningu Mike Tyson á Íslandi.

This post has been removed by the author of this petition (Show details)

2015-07-02 04:41



Guest

#2

2015-07-02 20:32

Ég samþykki ekki að dæmdir nauðgarar og ofbeldismenn komi til Íslands og þeim sé hampað sem kóngum.

This post has been removed by the author of this petition (Show details)

2015-07-04 12:51


This post has been removed by the author of this petition (Show details)

2015-07-04 12:53



Guest

#5

2015-07-04 14:27

I dont like men who rapes women, or are using violence against women or any other people. I HATE them. We have enough of men like Mike Tyson in Iceland, and we dont want more of them!!!!!!!

This post has been removed by the author of this petition (Show details)

2015-07-04 17:09


Eldur

#7

2015-07-04 17:17

Ég á rosalega erfitt með að átta mig á hvaða boðskapur liggur hérna undir. Eru feministar að fara bakdyramegin í því að styðja dauðarefsingar? Ég ætla ekkert að tjá mig um mál Tyson enda þekki ég ekki til þess. Nauðganir eru viðbjóðslegar sama hvort kona eða karl er gerandi eða þolandi. En við búum við kerfi þar sem markmið fangelsisvistar er betrun. Og ég sé að þessi maður hefur setið inni fyrir sinn glæp og þannig greitt samfélaginu fyrir brot sitt. Er boðskapurinn sá að þó að afplánun sé lokið og maðurinn með dóm að honum eigi að ýta úr samfélaginu og útskúfa, og þar að leiðandi auka líkur á að ýta honum út í frekari glæpamennsku. Rannsóknir sýna að slík framkoma eykur líkurnar á frekari brotum. Eruð þið þá ekki í raun að segja að dauðarefsingar séu lausnin á þessu til að samfélagið verði öruggara?

Elísabet Ýr Atladóttir
The author of this petition

#8 Re:

2015-07-04 17:26

#7: Eldur -  

 Hvar færðu út að dauðarefsing sé inní þessu? Þetta er ótrúlegt stökk frá því sem er sagt hérna.

Þessi undirskriftalisti var gerður því hann hefur aldrei tekið ábyrgð á brotum sínum. Hann afneitar því enn, þótt hann hafi verið dæmdur, og það nægir ekki að menn sitji í fangelsi í fáein ár og fari svo um og ljúgi upp á þolendur. Hefði hann tekið ábyrgð og bætt fyrir brot sín hefði þessi listi aldrei orðið til. 

This post has been removed by the author of this petition (Show details)

2015-07-04 18:26


This post has been removed by the author of this petition (Show details)

2015-07-04 19:11


H.V.

#11 Undirskirftasöfnun til höfuðs réttarríki?

2015-07-04 23:24

Góðan daginn kæru aktivista og tek það fram að ég ber fulla virðingu fyrir málstað ykkar og hef oft stutt ykkar mál þegar þið hafið góð rök fram að færa í umræðunni. En í þetta skipti get ég ekki tekið undir með ykkur.

Þó svo að ég muni ekki fara á sýninguna með M. Tyson og finnst í raun ekkert merkilegt að hann sé að koma til landsins þá verð ég að taka upp hanskann fyrir hann. Það er enginn réttlæting fyrir því hvaða brot hann framdi af sér og mér dettur ekki í hug minnka þá sekt. En það eru tvær aðrar ástæður fyrir því að mér í raun finnst þessi undirskriftarsöfnun sorgleg.

1. M.Tysons var handtekinn, sakfelldur og sat inni fyrir brot sín. Hugsunin á bak við fangelsins eru að þeir sem sakfelldir verða taki út refsingu sína. Einnig er hugsunin að vistin er nýtt sakborningi til betrunar og upplýsingar á hans/hennar brotum. Þegar afplánun er lokið er leitast við að sakfelldir einstaklingar geti gengið aftur inn í samfélagið sem betri borgarar. Hvaða skilaboð er þessi undirskriftalistar að senda til allra þeirra sem eru í þessum sporum í dag. Skilaboðin eru ekki uppbyggjandi.

2. Ef einhver er sekur um glæp gegn öðrum á þá að svipta einstaklinginn ferðafrelsinu. Er ekki þar að vera brjóta á grundvallar mannréttindum. Ef svo er er réttlætanlegt að gefa afslátt á mannréttindum. Ef svo er, hver á að dæma úr um hvenær afslátturinn er réttmætur og hvenær ekki.

Vona að þið takið þessum pósti sem innlegg inn í umræðuna.

Bestur kveðjur.

 

This post has been removed by the author of this petition (Show details)

2015-07-04 23:47


This post has been removed by the author of this petition (Show details)

2015-07-04 23:55



Guest

#14

2015-07-05 00:05

Because I know what a shit the guy is and I am amazed at how well he was received when he came out of prison.

Guest

#15 Re: Undirskirftasöfnun til höfuðs réttarríki?

2015-07-05 02:39

#11: H.V. - Undirskirftasöfnun til höfuðs réttarríki? 

 Varðandi atriði 1:
Þú vísar í betrunarvist og þá vil ég leggja áherslu á að enn þann dag í dag gengst hann ekki við glæpnum sem hann var dæmdur fyrir. Hann gerir lítið úr honum, afneitar honum, afbakar, afsakar og réttlætir. 
Sjálf mundi ég ekki mótmæla ef maðurinn hefði sýnt iðrun.


Guest

#16 Re: Re: Undirskirftasöfnun til höfuðs réttarríki?

2015-07-05 14:46

#15: - Re: Undirskirftasöfnun til höfuðs réttarríki? 

 Kannski var hann saklaus eftir allt og mun berjast fyrir því þa sem eftir er ævinnar, ekki eins og það hafi ekki gerst OFT áður!

Arnar Jónsson

#17

2015-07-05 14:51

Mikið er nú lélegt hvað forráðmenn þessa undirskriftarlista eyði út kommentum hérna sem eru ekkert annað en málefnanleg þó þau styðji ekki ykkar málsstað enda gera það flestir ekki og það sýnir sig greinilega að þið gjörsamlega kúkuðu upp á bak með þessu og allt þjóðfélgið snéri við ykkur baki. Það er vonandi að þið fáið fræðslu og kynnið ykkur betur málefni fanga og hvað við viljum með þáeftir afplánun og hvernig heim við viljum. Við viljum alls ekki öfgaskoðanir eins og ykkar sem eru líka settar upp í fáfræði og hugsunarleysi sjálfsagt.  En ég fyrirgef ykkur það samt sem áður

This post has been removed by the author of this petition (Show details)

2015-07-05 15:10


Hrefna Svanborgar Karlsdóttir

#19 Re: Undirskirftasöfnun til höfuðs réttarríki?

2015-07-05 17:28

#11: H.V. - Undirskirftasöfnun til höfuðs réttarríki? 

Varðandi fyrra atriðið vil ég ítreka það sem kemur fram í athugasemd #15 en það er að Tyson hefur aldrei tekið ábyrgð á gjörðum sínum, hann gerir ítrekað lítið úr ofbeldinu og talar niður til kvenna trekk í trekk. Orðræðan sem hann viðhefur um konur er í raun næg ástæða til þess að mótmæla sýningu hans, svipað og komu Franklins Graham á Hátíð vonar fyrir um tveimur árum var mótmælt vegna viðhorfa hans og áróðurs gegn samkynhneigðum. Því miður er það einnig þannig að fangelsisvist jafngildir ekki betrun þó kerfið sé ætlað til þess. Betrun hlýtur að fela í sér iðrun og vilja til að breyta rétt. Því miður hefur Tyson lítið breyst síðan á upphafi feril síns hvað varðar viðhorf hans til kvenna. Varðandi það hvaða skilaboð listinn sendir til fólks þá tel ég að þau séu á þá leið að hver og einn verður að taka ábyrgð á því ef hann fremur kynferðisbrot. 

Ferðafrelsi einstaklings (atriði númer tvö) kemur því lítið við hvort það þykir heppilegt að Tyson fái að halda sýningu sína hér eða ekki. Hann getur ferðast eins og hann vill um allt land en þessi listi snýst um að upphefja ekki einstakling sem sýnir óásættanlega hegðun sem felst í því að niðurlægja konur og að taka ekki ábyrgð á gjörðum sínum. 

Hrefna Svanborgar Karlsdóttir

#20 Re: Re: Re: Undirskirftasöfnun til höfuðs réttarríki?

2015-07-05 17:37

#16: - Re: Re: Undirskirftasöfnun til höfuðs réttarríki? 

Það kemur því miður fyrir að stundum situr fólk inni fyrir hluti sem það gerði ekki og það má aldrei vanmeta alvarleika þess og skaða þegar það gerist. En það er nú samt þannig að oftast er það á hinn veginn (og sem betur fer!). En burtséð frá sakfellingu Tysons þá viðhefur hann alvarlega og skaðlega orðræðu um konur sem niðurlægir þær, gerir lítið úr þeim og gefur til kynna að þær séu annars flokks. Það er í sjálfu sér næg ástæða til þess að safna undirskriftum. Til þess að fá örlítið skarpara sjónarhorn á málið má skipta út konum og setja annan hóp í staðinn, eins og hinsegin fólk, gyðinga eða fólk af erlendum uppruna. Myndum við vera jafn áfjáð í að fá einstakling til landsins sem talaði eins og Tyson talar um konur, um samkynhneigða eða múslima?

Hrefna Svanborgar Karlsdóttir

#22 Re: Re: Re: Re: Re: Undirskirftasöfnun til höfuðs réttarríki?

2015-07-05 23:34

#21: - Re: Re: Re: Re: Undirskirftasöfnun til höfuðs réttarríki? 

Ég var því miður ekki nógu skýr og það hefði verið betra hjá mér að orða spurninguna einhvern veginn svona: Myndum við vera jafn áfjáð í að fá einstakling til landsins sem talaði um samkynhneigða eða múslima eins og Tyson talar um konur? 

Ég er samt ánægð með það að Tyson hafi þarna tekið afstöðu gegn mismunum á grundvelli kynhneigðar eins og fram kemur í pistlinum. 

This post has been removed by the author of this petition (Show details)

2015-07-06 00:43


This post has been removed by the author of this petition (Show details)

2015-07-07 00:17



Guest

#25

2015-07-09 21:12

Þetta floppaði heldur betur.