Gegn tillögu að deiliskipulagi fyrir Vesturbugt/Slippasvæði

S.Þ.

/ #6 Slippsvæðið - mótmæla fyrirhuguðum framkvæmdum

2013-09-26 09:02

Vil mótmæla stærð húsanna sem fyrirhugað er að reysa á þessu svæði, bæði þéttleika og hæð þeirra. Sérstaklega vil ég mótmæla leikskóla sem á að reysa á efstu hæð einnar blokkarinnar með útileiksvæði á svölunum. Þó svona hugmynd geti gengi í veðursælli löndum, er hún ekki að gera sig hér. Ekki er plássleysi fyrir að fara á Íslandi. Leikskóla á helst að reysa á svæðum þar sem stutt er út í íslenska náttúru og ekki miklar hættur í umhvefinu eins og er við Slippsvæðið.