Bjarni Benediktsson, þú ert rekinn.


Guest

/ #100

2016-10-27 11:46

Bjarni er ekki heiðarlegur sem kemur berlega í ljós eins og til dæmis þegar hann heldur því fram að undir stjórn hans sem fjármálaráðherra hafi skattar verið lækkaðir á millitekjur og lágtekjufólk þegar hann þvert á móti hefur hækkað skatta þessa fólks en lækkað skatta hátekjufólks.Þetta hefur verið sýnt fram á af mönnum sem óumdeilt er að hafa meiri kunnáttu á útreikningi skatta heldur enn hann hefur. Frammi fyrir þessari staðreynd hefur Bjarni brugðið sér í gervi Gosa og reynt að gera lítið úr þeim staðreyndum sem við honum blasa og reynt að snúa sig út úr þessu með því að segja að launin hafi hækkað sem kemur máli þessu nákvæmlega ekkert við.